28.3.2007 | 09:19
Akutan, Alaska. Október 2006
Ég er staddur í Alaska í þriðja sinn á þessu ári, nánar tiltekið á hinum virðulega stað Akutan í Aleuta eyjaklasanum. Hér er (og ég vitna í náungann sem náði í okkur í flugvélina) ein verksmiðja með 900 starfsmönnum og eitt þorp með 100 alkohólistum. Sel það ekki dýrar en ég keypti.
Flugið hingað var vandræðalaust, Keflavík - Minneapolis - Seattle þar sem við gistum, svo Seattle - Anchorage - Dutch Harbour - Akutan, allt í allt um 17 tímar á flugi. Ekki mikið miðað við vegalengdina hingað. Hinsvegar æstust leikar þegar til Dutch Harbour var komið. Þar tók við þetta líka flugapparat, Grumman Goose flugbátur, anno 1944.
Nú er ég hinsvegar staddur í verksmiðjunni og má ekki taka myndir hérna. Enda er ég ekki viss um að ég myndi vilja setja myndir af þessum ósköpum inn. Við skulum orða það svo: Þessi verksmiðja fengi seint starfsleyfi heima.
Myndir er hægt að sjá á http://www.123.is/album/display.aspx?fn=rattati&aid=-302611590
Athugasemdir
Eru ekki fallhlífar örugglega standard accessories í þessum flugbát
Jónína Sólborg Þórisdóttir, 28.3.2007 kl. 09:37
Ja, ég sá þær ekki, en hann er svosem hannaður til að lenda á vatni...
Heimir Tómasson, 28.3.2007 kl. 11:08
Ekkert gagn í fallhlíf. Sundkútar eru björgunartækið í þessu apparati! Glottir eins og fífl.
B Ewing, 10.4.2007 kl. 18:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.