Lausnin fundin

Vertíðarstemmningin hefur löngum viljað loða við Íslendinginn. Allt er tekið mað áhlaupi og hlutirnir skveraðir af á sem stystum tíma. Svo þegar törnin er búin þá er hrunið í það með álíka stæl.

Það er einsýnt að stjórn ÁTVR er bara að leggja sitt af mörkum við að halda þjóðlegri hefð við lýði. Nú þegar fjárfestingatörnin er búin er ekkert annað að gera en að detta í það og halda hressilegt sveitaball. Fyrsti vísir að því er hvort eð er kominn fyrir framan alþingi á laugardögum. Vantar bara SSSól.


mbl.is Íslenskt brennivín lækkar í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst nú samt að í staðin fyrir að lækka verðið um 6% þá hefðu þeir frekar átt að auka styrkinn um 6%.  Það hefði gagnast mér og Njálsbúðarkynslóðini betur.

Stebbi (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 16:27

2 identicon

Gott að sjá líf á blogginu þínu. ;o)

Solveig (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband