Andskotans farsi er þetta...

Þingmenn Borgarahreyfingarinnar hyggjast starfa samkvæmt stefnuskrá sem samþykkt var fyrir kosningar. Komið er í lög hreyfingarinnar að stefnunni skuli breytt. Þingmenn segja of snemmt að segja hvort samstarfi verður haldið áfram með Borgarahreyfingunni eða ekki.

Ég á ekki orð.......


mbl.is Óvíst um frekara samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrannar Baldursson

Þetta er ósköp einfalt.

Sett var fram stefna Borgarahreyfingar og henni fylgt eftir fram að kosningum. Þessi stefna varð til þess að fjórir fulltrúar fengu kosningu. 

Eftir kosningar er ljóst að Borgarahreyfingin hefur fengið völd. Völd í sjálfum sér eru eftirsóknarverð fyrir sumt fólk. Þetta fólk vill völd. Það nær völdum í stjórn Borgarahreyfingarinnar og vill breyta stefnumálum flokksins, sem eru andstæð því sem þau fengu atkvæði fyrir.

Þeir sem fengu kosningu vilja ekki taka þátt í að svíkja kosningaloforð.

Þetta er ekki flókið.

Hrannar Baldursson, 18.9.2009 kl. 06:49

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Jú Hrannar minn....þetta er flókið. Vegna þess að það sem kemur þarna fram er einfaldlega ekki rétt

Stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar er algjörlega óbreytt...... og flest annað í þessari grein er bull líka.

Heiða B. Heiðars, 18.9.2009 kl. 08:09

3 identicon

Ég er svo kvikyndislegur og illa innrættur að mig langar að spyrja. Hver fær þá styrkinn frá Alþingi sem hreyfingin átti að fá frá áramótum?

Ég meina, ef þingmennirnir vilja ekki starfa með hreyfingunni, fer þá styrkurinn til þeirra?

Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 09:19

4 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Nei Þorsteinn - styrkurinn fer ekki til þingmannanna.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 18.9.2009 kl. 09:22

5 identicon

Snýst þetta þá ekki um peninga Lísa?

Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 09:37

6 Smámynd: Ásthildur Jónsdóttir

Stefnan er óbreytt svo ástæða þingmannanna stenst ekki.  Þetta snýst miklu frekar um geðvonsku vegna þess að þeirra tillaga varð undir - tillaga sem hefði gert Borgarahreyfinguna að ólýðræðislegasta stjórnmálaafli landsins. 

Ásthildur Jónsdóttir, 18.9.2009 kl. 09:57

7 Smámynd: Pétur Harðarson

Þessar hreyfingar og þreifingar passa vel inn í þann brandara sem er íslenskt alþingi. Það hlýtur samt að teljast sorglegt að þessi litli flokkur sem á átti að vera málsvari grasrótarinnar getur ekki haldið sér saman.

Pétur Harðarson, 19.9.2009 kl. 18:46

8 Smámynd: Sigurjón

Ég set spurningamerki um að þingmenn þurfi að sverja eið að stefnu BH.  Það getur ekki staðizt stjórnarskrá...

Sigurjón, 27.9.2009 kl. 18:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband